Privacy policy

Síðast uppfært: May 1, 2026

Skilmálar og skilyrði

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum sem dreifðar eru af Íslandspósti gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Idaverslun.is ber samkvæmt þessu ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Idaverslun.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða sérstaklega fyrir rekjanlegt bréf.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Þegar kaupandi verslar í vefverslun Idaverslun.is er hægt að fá pöntunina heimsenda.

Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingatími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingatími er mismunandi eftir því hvar kaupandi býr.

Pantanir á höfuðborgarsvæðinu verða keyrðar út af Idaverslun.is eða Dropp. Allar pantanir fyrir utan höfuðborgarsvæði verða sendar með Íslandspósti eða Dropp. Verð reiknast út frá þyngd sendingar.

Vara send með Dropp:
Viðskiptavinur getur valið hvort hann sæki vöru á N1 stöð næst sér eða fá pöntunina sína heimsenda. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvískun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við verð sem greitt var skv. sölureikningi. 

Idaverslun.is (Andreuland ehf.) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Gölluð vara
Sé vara gölluð hvetjum við viðskiptavini að hafa samband við okkur. Viðskiptavinum er boðin ný vara í staðinn og greiðir Idaverslun.is fyrir sendingarkostnað.

Útsölur og vöruskil
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu. Hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru á meðan á útsölu stendur.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law

Spurningar

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Netfang: info@idaverslun.is
Sími: +3546907821

Upplýsingar um seljanda

Andreuland ehf. 
Kt: 460515-0840
Sími:  +3546907821
Netfang: info@idaverslun.is
Heimilisfang: Bolholt 4, 105 - Reykjavík, Ísland.